Syndsamlega gott pasta sem fær 3 stjörnur
Hráefni
- 2 kjúklingabringur
- pakki af fersku pasta (tagliatelle með spínati er sérstaklega gott)
- 1 zukini
- 1 bakki af sveppum
- 1 lauf af hvítlauk
- 1 peli af rjóma
- 2 tsk. af rauðu pestói (best að nota philipo berrio)
- smá hvítvín - má sleppa
- Klípa af grænmetiskraft (eða sveppakraft)
- pipar
- Maldon salt
- papriku krydd
- ólívuolía
Aðferð
- Kjúklingur er kryddaður með salti og pipar og brúnaður á pönnu. Síðan er hann settur í álpappír og inní ofn í ca. 8 mín. við 180°
- Grænmetið er steikt upp úr ólívuolíu, þegar sveppirnir eru orðnir mjúkir þá bætirðu rjómanum, pestóinu, hvítvínsslettu og grænmetiskraft við.
- Kryddaðu með maldon salti, pipar, papriku kryddi, láttu suðuna koma upp, lækkaðu svo undir hellunni og láttu malla í nokkrar mínútur. kryddaðu til þangað til sósan er orðin ómætstæðilega góð.
- Pastanu og sósunni er blandað saman og ef þú ert í spari skapi þá geturðu skreytt pastað með basil eða vorlauk.
Gott meðlæti
- Hvítlauksbrauð
- salat