miðvikudagur, 6. mars 2013

Kjúklinga pestó pasta


Syndsamlega gott pasta sem fær 3 stjörnur

Hráefni
  • 2 kjúklingabringur
  • pakki af fersku pasta (tagliatelle með spínati er sérstaklega gott)
  • 1 zukini
  • 1 bakki af sveppum
  • 1 lauf af hvítlauk
  • 1 peli af rjóma
  • 2 tsk. af rauðu pestói (best að nota philipo berrio)
  • smá hvítvín - má sleppa
  • Klípa af grænmetiskraft (eða sveppakraft)
  • pipar
  • Maldon salt
  • papriku krydd
  • ólívuolía

Aðferð
  1. Kjúklingur er kryddaður með salti og pipar og brúnaður á pönnu. Síðan er hann settur í álpappír  og inní ofn í ca. 8 mín. við 180°
  2. Grænmetið er steikt upp úr ólívuolíu, þegar sveppirnir eru orðnir mjúkir þá bætirðu rjómanum, pestóinu, hvítvínsslettu og grænmetiskraft við.
  3. Kryddaðu með maldon salti, pipar, papriku kryddi, láttu suðuna koma upp, lækkaðu svo undir hellunni og láttu malla í nokkrar mínútur. kryddaðu til þangað til sósan er orðin ómætstæðilega góð.
  4. Pastanu og sósunni er blandað saman og ef þú ert í spari skapi þá geturðu skreytt pastað með basil eða vorlauk.
Gott meðlæti
  • Hvítlauksbrauð
  • salat