Innihald:
1 peli rjómi
ein vaniluskyr
2 pakkar af oreo kökum
1 msk flórsykur
1 tsk vaniludropar ( eða vanilusykur, vanilustöng)
100 gr. smjör.
Súkkulaði plata
Aðferð:
1. Tekur smjörið útúr ískápnum og leyfir því að ná stofuhita.
2. Botninn býrðu til með að blanda saman einum muldum pakka af orea og linu smjörinu og þrýsta deiginu í formið.
2 Þeytir rjómann, setur skyrið, flórsykurinn og vaniludropana og nokkarmuldar oreo kökur út í og hrærir létt í viðbót.
3. Setur þetta síðan ofan á oreoið í forminu og skreytir með ca. 3-4 oreo kökum.
4. Síðan bræðiru súkkulaði og skreytir með því yfir?
Díana vinkona mín úr 2010 mömmuhópnum mín kom með þessa köku í saumaklúbb hjá okkur. Ég bara gat ekki hætt að hugsa um hana og varð að fá uppskriftina. Þessi kaka er einföld í gerð, það tekur ca. 10 mín að búa hana til og hún er gómsæt! Verði ykkur að góðu
Engin ummæli:
Skrifa ummæli