laugardagur, 15. mars 2014

Afríkönsk grænmetiskássa

Innihald:

2 grænar paprikur
1 laukur
250 g sveppir (einn bakki)
1 zuccini
1/2 bolli af olíu
2 bollar vatn
lítil dolla af Hunts tomate paste
kúfuð matskeið af hnetusmjöri með hnetum
1 tsk salt
1 tsk chili

Aðferð:

1.  Þú mýkir grænmetið í olíunni.
2. Bætir við vatninu og tomate paste og soðið í 20 mín.
3. Hnetusmjörinu, saltinu og chili-inu bætt við og smakkað til.

Gott meðlæti:

Mér finnst nauðsynlegt að hafa nan brauð og hrísgrjón með og svo er breytilegt hvað annað ég hef með. Það er gott að hafa:
Mango chutney
Salat
Kókos
Banana
Rúsínur

Þetta er hollur, góður og ódýr réttur sem auðvelt er að búa til og breyta eftir því hvað er til í eldhúsinu að hverju sinni. Stundum steiki ég kjúkling og bæti honum útí kássuna, mér finnst það ekkert nauðsynlegt en maðurinn minn er alltaf glaðari ef það er kjöt í matnum :)

Engin ummæli:

Skrifa ummæli