1 pk lasagnaplötur
fylling:
1-2 msk lífræn kókosfita
2-3 laukar, smátt saxaðir
2 pokar ferskt spínat
½ tsk múskat
1,5 tsk karrý
1 tsk salt
1 - 2 dósir kókosmjólk
200 -300g rifinn geitaostur/ mozzarella ostur
200 - 300g soðnar kartöflur eða hýðishrísgrjón
Aðferð:
1. Laukurinn er mýktur í smá lífrænni kókosfitu í 2-3 mín
2. spínatinu bætt útí smátt og smátt
3. kryddinu og kókosmjólkinni bætt í og og þetta er látið malla í ca 10 mín.
4. Þessu er skellt í skál og osturinn og kartöflurnar/hrísgrjónin sett útí.
5. Síðan er lasagnaplöturnar og fyllingin settar til skiptis í ofnfast mót og ostur settur ofan á fyllinguna í lokin.
- Það er hægt að strá smá aukaosti yfir fyllinguna áður en lasagnaplöturnar eru settar ofan á fyllinguna. Eins er hægt að hella smá auka kókosmjólk hringinn í kringum formið innanvert ef fyllingin er of þurr.
- Þetta bakast svo við 200°C í 25-30 mín. Hafðu lok eða álpappír yfir mótinu til að byrja með en taktu það af þegar ca. 5 mín. eru eftir.
Látið standa í 5 mín. skerið svo í bita og setjið rautt pestó ofan á. Ef þú ert í stuði þá geturðu búið til þitt eigið pestó en ég skellti bara filippo berio pestói ofan á.
Meðlæti:
Berið fram með nýbökuðu grófu brauði og stóru og miklu salati
Það er fljótlegt og auðvelt að matreiða þetta og þrælgóð leið til að fá börnin til að borða vel af spínati! Verði ykkur að góðu :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli