Kjúklingur og marinering:
3-4 kjúklingabringur eða bakki af kjúklingalundum½ dós grísk jógúrt
2 tsk. Piri Piri krydd
1 tsk. kjúklingakrydd
1 tsk sjávarsalt
smá skvetta af soya sósu
2 tsk olía
1 tsk sítrónusafi
Hræðu saman jógúrtina með kryddunum, olíunni og sítrónusafanum í skál. Skerðu kjúklingabringurnar í sneiðar settu út í skálina með marineringunni. Hrærðu saman og leyfðu því að marinerast í 1-2 klst. Steiktu svo kjúklinginn á pönnu eða skelltu honum á grillið, það er náttúrulega langbest :)
Bankabygg:
3 dl bankabygg
9 dl vatn
1-2 tsk sjávarsalt
1 tsk karrý
Allt sett saman í pott og látið sjóða í 40 mín.
Jógúrtsósa:
3 msk af grískri jógúrt
1/2 dl kalt vatn
salt
pipar
chilli krydd
skvetta af sítrónusafa
fersk steinselja (hef líka notað þurrkaða ef ég hef ekki átt ferska til)
Steinseljan er skorin smátt og svo er öllu blandað saman.
Ég hef líka keypt jógúrtsósuna frá Saffran og haft hana með réttinum.
Salat:
1/2 gúrka
3 tómatar
1/2 poki blandað salat
Sítrónusafi
Fræhreinsaðu tómatana og skerðu grænmetið mjög smátt og settu svo smá skvettu af sítrónusafa yfir.
Meðlæti:
Piri Piri sósa frá Saffran
Grillaður rauðlaukur
Grilluð epli
Þetta er svolítill dútl matur en rosalega góður og hollur. Verði ykkur að góðu :)
Grillaður rauðlaukur
Grilluð epli
Þetta er svolítill dútl matur en rosalega góður og hollur. Verði ykkur að góðu :)