þriðjudagur, 2. desember 2014

Þykkar, góðar og matarmiklar vöfflur

Þetta er uppáhalds vöfflu uppskriftin mín, vöfflurnar eru ljúffengar og uppskriftin er sykurlaus svo ég get með góðri samvisku boðið fólki með sykursýki upp á þær (þekki furðu marga með sykursýki) og þeim sem kjósa sykurlausan lífsstíl.

Innilhald:

  • 3,5 dl heilhveiti
  • 4 dl hveiti
  • 3/4 tsk salt
  • 2 3/4 tsk matarsódi
  • 1 L súrmjólk
  • 135 ml matarolía
  • 3 egg
  • rúmlega 2 tsk sítrónudropar
Aðferð:
  • Þurrefnum blandað saman.
  • Súrmjólk, olíu og eggi hrært við.
  • Ekki þarf að smyrja vöfflujárnið áður því olían í deiginu passar upp á að deigið festist ekki við.
Ef að þú átt ekki tvöfalt vöfflujárn og býrð oft til vöfflur þá mæli ég eindregið með því að þú fjárfestir í einu slíku því það tekur náttúrulega tvöfallt styttri tíma að búa til vöfflurnar.. og biðin eftir að mega byrja borða þær er oft svo erfið og löng. Sérstaklega fyrir litla fólkið!

Meðlæti:

Fólk er nú venjulega alveg með það á hreinu hvað það vill hafa á vöfflunum sínum en vildi samt koma með nokkrar öðruvísi uppástungur fyrir þá sem fá sér alltaf það sama og langar að prófa eitthvað nýtt.
  • Flórsykur. Þýskt afbrigði sem kemur skemmtilega á óvart
  • sýróp og banana - best á amerískar pönnukökur en líka sjúklega gott á vöfflu.
  • brætt súkkulaði, þeyttan rjóma og banana (sjúklega gott)
  • Ef þú ert að fá einhvern í vöfflur sem borðar ekki sykur þá er gott að kaupa sykurlausu sultuna (man ekki hvað hún heitir en hún fæst í heilsuhorninu í flest öllum búðum) og vera með þeyttan rjóma. Það er oft viðbættur sykur í sprauturjómunum sem maður kaupir.



Engin ummæli:

Skrifa ummæli