þriðjudagur, 6. janúar 2015

Mexíkóskur mangókjúklingur

Ég bara verð að benda ykkur á þessa uppskrift á ljúfmeti og lekkerheit. Þetta er auðvelt, fjlótlegt hollt og sjúklega gott! Allt það sem maður er að leita að. Steffí, 2 ára skottan mín, borðaði 1 1/2 bringu - maturinn fær ekki betri meðmæli en það.

Ég vona að þið njótið jafn vel og við

http://ljufmeti.com/2012/09/15/mexikoskur-mangokjuklingur/

sunnudagur, 14. desember 2014

Einföld hráfæðis uppskrift sem hægt er að galdra úr konfekt, hollar nammistangir og ljúffenga hráfæðisköku!

Þetta er virkilega gott konfekt og auðvelt í framkvæmd. Konfektið geymist í viku í kæli en ég geymi það alltaf í frystinum. Það er hægt að borða það beint úr frystinum en það er samt betra ef þú leyfir því standa í 10 - 15 mín. Ég geri venjulega tvöfalda uppskrift, bý til konfekt og heilsustangir úr helmingnum (eða eins mikið og ég nenni) og skelli afgangnum í kökubotn. Gæti ekki verið einfaldara og þægilegra.

Innihald:
  • 60 g kókosolía
  • 1 banani (vel þroskaður)
  • 1 dl haframjöl
  • 1 dl kókosmjöl
  • ¼ dl lífænt kakó
  • 250 gr döðlur
  • 1 ½ tsk vanilludropar
  • 1 ½ tsk kanil
  • Kókosmjöl eða möndlur til að velta konfektinu upp úr.


Aðferð:
  1. Láttu döðlurnar liggja í bleyti í u.þ.b. klukkutíma.
  2. Kókosolíudollan látin liggja í heitu vatnsbaði þannig að hún mýkjist.
  3. Skelltu öllum hráefnunum í matvinnsluvélina og hún sér um restina, nema ef þú átt ekki svoleiðis græju (eða töfraskera) þá skerðu döðlurnar smátt, stappar bananann og blandar hinum hráefnunum við. Aðeins tímafrekara en samt mjög auðvelt.
  4. Smakkaðu deigið til og gerðu það að þínu eigin með því að bæta við meiri kanil, kókosmjöli , hálfum banana í viðbót, stevia eða einhverju öðru sniðugu.
Konfekt:
  1. Mótaðu litlar kúlur og veltu þeim upp úr einhverju girnilegu eins og kókosmjöli, ristuðu kókosmjöli eða möndlum.
  2. Sett í kæli í ca. 30 mín og svo skellt í poka eða box og í frystinn. 

Hollar nammistangir:

Mér finnst mjög gott að eiga hollar nammistangir handa stelpunum mínum og set ég þá deigið í svart klakabox frá IKEA og frysti þær svo. Gerist ekki auðveldara 

http://www.ikea.is/products/12


Hráfæðiskaka
Þessi er í miklu uppáhaldi hjá mér og ég geri hana fyrir öll afmæli og veislur. Syndsamlega góð kaka fyrir sykursjúka og þá sem sneiða hjá sykri og já, náttúrulega alla hina.

Smjörpappír er skellt í kökuform, deiginu þrýst vel í formið og þetta set ég inn í kæli ef ég ætla að bera kökuna fram bráðum, annars inn í frysti. Þegar deigið er frosið þá tek ég kökubotninn úr kökuforminu og set álpappír utan um smjörpappírinn og skelli því aftur í frystinn. Þá er svo yndislega einfalt að galdra fram köku næst þegar von er á gestum. 
Tekur botninn úr frystinum, þeytir rjóma og stappar banana, blandar banananum við rjómann og setur ofan á botninn. Skerð niður ávexti og skellir þeim ofan á kökuna.




miðvikudagur, 10. desember 2014

Súkkulaðibitakökur

Þessar eru gerðar fyrir hver jól á mínu heimili. Auk þess að vera ljómandi góðar þá finnst litlum fingrum mjög gaman að búa þær til, og ekki þarf að hafa neinar áhyggjur þótt ákafir hjálparsveinar seti óvart of mikið af kókosmjöli eða einhverju öðru. Þetta er svona uppskrift sem er ekki hægt að klúðra. Litla systir mín ELSKAR deigið og höfum við oft búið til svona deig fyrir jólin en endað með fáar.. eða jafnvel engar kökur, hehe.

250 g smjör (við stofuhita)
5 dl púðursykur
2 egg
1 tsk vanilludropar
2 1/2 dl kókosmjöl
5 dl haframjöl
5 dl hveiti
2 tsk lyftiduft
1/2 tsk matarsódi
1 msk vatn
200 g suðusúkkulati (brytjað niður)

Smjör, púðursykur og egg hrært saman þangað til það verður létt og ljóst og þá er hinum hráefnunum bætt við, endað á súkkulaðinu. Búðu til litlar kúlur, skelltu þeim á ofnplötu með smjörpappír á, þrýstu svo fingrunum ofan á til að fletja þær aðeins út.

Bakað við 200°C í ca. 8 mín eða þangað til þær verða fallega ljósbrúnar.

Black eyed peas súpa

Hérna er ein gömul og góð sem ég bjó mjög oft til á þeim 2 árum sem ég var vegan og var líka ósjaldan í matinn hjá mér þegar ég var grænmetisæta. Þá bjó ég til 2 - 3 falda uppskrift og frysti afganginn. Það er reyndar langt síðan þessi rataði á matseðil vikunnar þótt hún sé ódýr og að mínu mati ljómandi góð, því hún fellur alls ekki í kramið hjá hinum fjölskyldumeðlimunum. En ég ákvað að skella henni hérna inn í von  um að það sé e-r vegan/ vegetarian sem kann að meta hana :)

Innihald:


  • 250 g black eye beans (augnbaunir)
  • 1 tsk olívuolía
  • 1 stór laukur (smátt saxaður)
  • 2 hvítlauksrif
  • 2 gulrætur
  • 2 sellerí
  • 1 rauð paprika
  • 1/2 tsk timian
  • 1 lárviðarlauf
  • 1,2 L grænmetissoð
  • 600 ml vatn
  • salt og pipar 
  • steinselja til skrauts (má sleppa)


Aðferð:

  1. Baunir látnar liggja í bleyti í a.m.k. 6 klst. 
  2. Síðan eru baunirnar settar í pott og vatn sett í pottinn þangað til vatnið nær a.m.k. 5 cm hærra en baunirnar.
  3. Þetta er látið sjóða í 10 mín. 
  4. Helltu baununum í sigti, skolaðu þær með köldu vatni og láttu mesta vatnið renna af.
  5. Laukur steiktur í 3-4 mín (hræra oft). Hvítlauk, gulrætum, sellerí og papriku bætt við og steikt í 2 mín.
  6. Bættu við baunum, timian, lárviðarlaufi, soði og vatni. Látið ná suðu, hiti minnkaður og látið malla í ca. klukkustund. Hrært í af og til.
  7. Hrísgrjónunum bætt við. Súpan söltuð og pipruð. Látið malla í ca. 30 mín, eða þangað til baunir og hrísgrjón eru orðin mjúk.
  8. Lárviðarlaufið tekið úr. Súpan smökkuð til og krydduð og hafðu það í huga að less is more gildir ekki um svarta piparinn.

Meðlæti:
Það er gott að hafa gróft og gott brauð með en alls ekkert nauðsynlegt.

miðvikudagur, 3. desember 2014

Bruschetta

Bruschetta er mjög góður forréttur og þetta er líka ein af all time uppáhalds pizzunum mínum.

Innihald:

  • 10 stk vel þroskaðir tómatar
  • 3 hvítlauksrif
  • 3 msk olífuolía
  • oregano 
  • svartur pipar
  • snittubrauð eða pizzudeig


Aðferð:

  1. Fræhreinsar tómatana og skerð þá í litla bita.
  2. saxar hvítlaukinn smátt
  3. blandar öllu saman í skál
  4. Best er ef þú leyfir þessu að marenírast í 1-2 tíma. Þá kemur svo mikið hvítlauksbragð af tómötunum og olífuolíunni. En það er samt allt í lagi að nota þetta stuttu eftir að þetta er gert.
  5. Svo skellirðu blöndunni á snittubrauð eða pizzudeig og bætir smá svörtum pipar ofaná.
  6. Hitað í ofni við 180°C  í 3 - 5 mín. 
  7. Njótið vel

Pizza

Pizzubakstur er orðin listgrein á mínu heimili og eftir að hafa búið til pizzur um það bil vikulega síðustu árin þá eru komnar miklar seramóníur um hvernig á að gera þetta. Það er svo kósý á föstudags eða laugardagskvöldi að búa til gómsætar pizzur og góðan eftirrétt. Ef ég bý deigið til í brauðvélinni þá bý ég bara til hálfa uppskrift og stilli vélina á "dough". Hálf uppskrift er fín fyrir þunnar pizzur fyrir 5-6 en oftast bý ég til heila uppskrift og bý til kanelsnúða, skinkuhorn, pizzusnúða eða fyllt brauð úr afgangnum.
Mér finnst gaman að búa til margar ólíkar pizzur og allir fá sér eins og þeir vilja en ef að við búum bara til eina pizzu á mann þá sker ég oftast út hjartapizzur handa stelpunum. Einnig er hægt að nota pizzuhnífinn til að skera út brauðstangir úr pizzunni, Eva systir mín vildi alltaf hafa sína pizzu svoleiðis þegar hún var lítil. Þá eru brauðstangirnar bornar fram með pizzusósu til að dýfa í.

Innihald:

  • 6 tsk þurrger
  • 6 1/4 dl volgt vatn
  • 14 - 16 dl hveiti (nota oftast heilhveiti í helminginn eða jafnvel nota spelt í staðinn)
  • 2 tsk salt
  • 2 msk hunang
Aðferð:
  1. setur vatnið í skál, en vatnið á að vera við líkamshita.
  2. nærð þér í venjulega tsk og fyllir hana rúmlega af hunangi og hrærir við vatnið.
  3. setur þurrgerið útí og hrærir eins lítið og þú getur en nóg til að það blotni allt. Svo bíðurðu bara þangað til gerið er búið að blása svo mikið út að þú sérð ekki lengur vel í vatnið.
  4. þá skellirðu saltinu yfir og byrjar að hella hveiti útí. Hrærir og hnoðar þangað til deigið er orðið ágætlega mótað en ennþá blautt.
  5. Setur rakt viskustykki yfir og leyfir deiginu að lyfta sér í a.m.k. 30 mín.
  6. Deigið hnoðað upp úr meira hveiti og flattir út mjög þunnir botnar.
  7. Ég flet út hring og skelli því á pizzugrind (fást á 1000 kr í IKEA) og sker það sem fer útfyrir grindina af með pizzuhníf og fæ þá svona ljómandi fallegar pizzur.
  8. Gott álegg sett á og pizzurnar settar í 180°C heitan ofn í 3-5 mín, eða þangað til osturinn er bráðnaður og byrjaður að "bubbla".
Álegg:

Ég er með mjög sterkar skoðanir á hvað er best að nota ofan á pizzur.
Besta pizzusósan er að mínu mati Contadina, pizza squeeze (ég kaupi hana í bónus). 
Ég nota bara rifinn mozzarella ost því það er enginn annar ostur jafn góður á pizzu og það er náttúrulega lykilatriði að setja vel af oregano á hverja pizzu.