Innihald:
- 3 dl volgt vatn
- 1 tsk salt
- 1 banani (vel þroskaður)
- 1 dl smátt saxaðar döðlur
- 5 dl heilhveiti
- 5 dl hveiti
- 1 msk þurrger
Brauðvél:
Ef þú átt brauðvél þá er náttúrulega algjör snilld að skella þessu bara í hana á klassísku stillinguna og pæla ekki meira í því fyrr en það er tilbúið. En mér finnst skemmtilegra að borða þetta í brauðbollum þannig að ég stilli vélina á "dough" (deig). Ef þú notar brauðvélina þína ekki oft þá er það eina sem þú þarft í raun og veru að pæla í er að setja vatnið fyrst og gerið seinast.
Deig búið til í höndunum:
- Stappaðu bananann, blandaðu honum við vatnið og þurrgerið.
- Blandaðu döðlunum og þurrefnunum við.
- Settu hveiti á borðið og hnoðaðu deigið vel.
- Settu rakt viskustykki yfir og leyfðu að lyfta sér í 30 mín - 1 klst.
- Ef þú vilt búa til heilt brauð þá seturðu hefurðu það í ofninum í ca. 45 mín við 180°C en ef þú vilt bollur þá fylgirðu leiðbeiningunum hér að neðan.
Bollur:
- Nærð þér í ofnplötu og skellir á hana smjörpappír
- Býrð til bollur úr deiginu. Hver bolla er á sært við 1 1/2 golfbolta.
- Setur viskustykki yfir bollurnar og leyfi þeim að lyfta sér í ca 30 mín.
- Penslar bollurnar með eggi (eða mjólk).
- hitar ofninn á 180 °C og bakar svo bollurnar í ca. 10 mín, eða þangað til þær eru fallega brúnaðar og þegar þú lyftir bollunni upp þá er hún aðeins brún undir.
Meðlæti:
Nammi gott að fá sér heita bollu með smjöri, osti og marmelaði. En þær eru líka ljómandi góðar eintómar og kaldar.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli