mánudagur, 1. desember 2014

Karrý Kjúklingur Únu

Ég er alltaf svolítið veik fyrir karrýréttum, tala nú ekki um ef það er einhver kókos factor líka. Þessi stendur alltaf fyrir sínu og er mildur og góður. Það er ekki auðvelt að gleðja alla í fjölskyldunni minni með kvöldmatnum, betri helmingurinn minn er matvandur með meiru, unglingurinn líka, 4 ára skottan hefur óbeit á kryddi en 2 ára dúllan vill hafa MIKIÐ bragð og gæti örugglega borðað eintóman chili pipar ef það væri í boði. En þessi réttur er einn af fáum sem rennur ljúflega niður hjá öllum. Rétturinn er fyrir 4 en ég geri venjulega tvöfalda uppskrift og við borðum hann með meðlætinu hér að neðan daginn sem hann er eldaður. Afgangnum af karrýinu er blandað við hrísgrjónin og skellt inn í ískáp. Daginn eftir hita ég grítuna upp og rista brauð. Brauðið er skorið í 2 þríhyrninga, smurt með mango chutney og grítunni skellt ofan á. Einfalt og svo gott og manni finnst manni finnst maður alls ekki vera borða afganga þegar búið er að pimpa þetta aðeins upp.

Innihald:

  • 1 heill kjúklingur
  • 3 hvítlauksrif
  • 1 tsk sjávarsalt
  • 1 1/2 pinch af engifer
  • 2 pinch svartur pipar
  • 1-2 tsk karry
  • 2 epli
  • 10-12 litlir gulir laukar
  • 2 msk kókos
  • 2 dl súrmjólk
  • 2 dl af vatni með kjúklingakraft
  • 1 paprika
  • 1/4 pinch af chili dufti
  • 1 pinch af chili dufti

Aðferð:

  1. Hvítlaukurinn skorinn og kryddaður með salti, pipar og engifer.
  2. Kjúklingur skorinn í 8 - 10 bita.
  3. Kryddblöndunni er nuddað í kjúklinginn.
  4. Eplin eru skorinn í teninga.
  5. Kjúklingurinn er brúnaður, eplunum og karrýinu er bætt útí.
  6. Súrmjólkinni bætt útí og grítan látin ná suðu á meðan hrært er í.
  7. Kókosnum, kraftsoðinu og lauknum bætt við. Látið malla við vægan hita í 20 mín. með lokið á pottinum.
  8. Paprikan skorin í strimla og bætt út í ásamt chilli kryddinu og þetta látið malla áfram í 5 mín.
  9. Kókos og salthnetum stráð yfir og voilá! Verði ykkur að góðu.
Meðlæti:
Karrýið er borið fram með hrísgrjónum, mango chutney og jafnvel salthnetum í skál.. og það má náttúrulega ekki gleyma salatinu.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli