mánudagur, 1. desember 2014

Ítölsk grænmetissúpa

Þessi súpa er ótrúlega matarmikil og góð og vekur alltaf mikla lukku hjá öllum á heimilinu. Grænmetisvalið er bara tillaga, ég set venjulega bara það grænmeti sem til er í súpuna en mér finnst samt nauðsynlegt að hafa kartöflurnar og gulræturnar. Þegar ég bý til þessa súpu þá geri ég jafnan tvö- til þrefalda uppskrift og frysti afganginn. Það er svo gott að eiga hollan og góðan mat tilbúinn í frystinum.  Þegar ég ætla að frysta þá bæti ég samt pastafiðrildunum ekki útí, heldur sýð pastað í sér potti og set í hvern disk, því pasta er að mínu mati ekki gott þegar búið er að frysta það. Súpan geymist líka í 4-5 daga í ískap og eins og flestar súpur þá er hún enn betri þegar maður hitar hana aftur upp.

Innihald:

  • 1 laukur
  • 2 gulrætur
  • 1 sellerístilkur
  • 5-6 kartöflur
  • 1/2 blómkál
  • 4 hvítlauksrif
  • 1/2 L vatn
  • 3 grænmetisteningar
  • 400 g saxaðir tómatar í dós
  • 3 msk tómatpúrra
  • 1 tsk oregano
  • pipar
  • 2 dl pastafiðrildi

Aðferð:

  1. Grænmetið er skorið niður í hæfilega munnbita.
  2. Steiktu grænmetið þangað til laukurinn er orðinn mjúkur og gegnsær.
  3. Bættu tómötum, tómatpúrru, vatni og grænmetisteningum við og láttu sjóða við vægan hita í ca. 30 mín. 
  4. Pastafiðrildunum skellt í og látið sjóða í 10 mín í viðbót (eða samkvæmt leiðbeiningum á umbúðunum).
  5. Kryddaðu súpuna
  6. Njótið vel

Meðlæti:

Mér finnst nauðsynlegt að hafa gott brauð með. Helst nýbakað og brakandi.


Engin ummæli:

Skrifa ummæli