Þetta er virkilega gott konfekt og auðvelt í framkvæmd. Konfektið geymist í viku í kæli en ég geymi það alltaf í frystinum. Það er hægt að borða það beint úr frystinum en það er samt betra ef þú leyfir því standa í 10 - 15 mín. Ég geri venjulega tvöfalda uppskrift, bý til konfekt og heilsustangir úr helmingnum (eða eins mikið og ég nenni) og skelli afgangnum í kökubotn. Gæti ekki verið einfaldara og þægilegra.
Innihald:
- 60 g kókosolía
- 1 banani (vel þroskaður)
- 1 dl haframjöl
- 1 dl kókosmjöl
- ¼ dl lífænt kakó
- 250 gr döðlur
- 1 ½ tsk vanilludropar
- 1 ½ tsk kanil
- Kókosmjöl eða möndlur til að velta konfektinu upp úr.
Aðferð:
- Láttu döðlurnar liggja í bleyti í u.þ.b. klukkutíma.
- Kókosolíudollan látin liggja í heitu vatnsbaði þannig að hún mýkjist.
- Skelltu öllum hráefnunum í matvinnsluvélina og hún sér um restina, nema ef þú átt ekki svoleiðis græju (eða töfraskera) þá skerðu döðlurnar smátt, stappar bananann og blandar hinum hráefnunum við. Aðeins tímafrekara en samt mjög auðvelt.
- Smakkaðu deigið til og gerðu það að þínu eigin með því að bæta við meiri kanil, kókosmjöli , hálfum banana í viðbót, stevia eða einhverju öðru sniðugu.
Konfekt:
- Mótaðu litlar kúlur og veltu þeim upp úr einhverju girnilegu eins og kókosmjöli, ristuðu kókosmjöli eða möndlum.
- Sett í kæli í ca. 30 mín og svo skellt í poka eða box og í frystinn.
Hollar nammistangir:
Mér finnst mjög gott að eiga hollar nammistangir handa stelpunum mínum og set ég þá deigið í svart klakabox frá IKEA og frysti þær svo. Gerist ekki auðveldara
http://www.ikea.is/products/12
Hráfæðiskaka
Þessi er í miklu uppáhaldi hjá mér og ég geri hana fyrir öll afmæli og veislur. Syndsamlega góð kaka fyrir sykursjúka og þá sem sneiða hjá sykri og já, náttúrulega alla hina.
Smjörpappír er skellt í kökuform, deiginu þrýst vel í formið og þetta set ég inn í kæli ef ég ætla að bera kökuna fram bráðum, annars inn í frysti. Þegar deigið er frosið þá tek ég kökubotninn úr kökuforminu og set álpappír utan um smjörpappírinn og skelli því aftur í frystinn. Þá er svo yndislega einfalt að galdra fram köku næst þegar von er á gestum.
Tekur botninn úr frystinum, þeytir rjóma og stappar banana, blandar banananum við rjómann og setur ofan á botninn. Skerð niður ávexti og skellir þeim ofan á kökuna.